Þær skattabreytingar sem ríkisstjórnin kynnti í gær munu að mati okkar leiða til u.þ.b. 1,3% hækkunar á vísitölu neysluverðs á fyrsta fjórðungi næsta árs.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka en í grófum dráttum er skipting þessara áhrifa þannig að hækkun virðisaukaskatts er líkleg til að valda 0,9% hækkun á vísitölu neysluverðs en hækkun vörugjalda og orku-, auðlinda og umhverfisskattar munu beint og óbeint leiða til 0,4% hækkunar vísitölunnar.

Greining Íslandbanka segir að samkvæmt þessu muni skattabreytingarnar leiða til 15-16 milljarða króna hækkunar á höfuðstól íbúðalána landsmanna á komandi mánuðum. Þegar frá líður muni hækkun á beinum og óbeinum sköttum þó verða til þess að minnka verðbólguþrýsting vegna neikvæðra áhrifa á innlenda eftirspurn.

Þá segir Greining Íslandsbanka að þrátt fyrir umfangsmiklar skattahækkanir um næstu áramót verði skatttekjur ríkissjóðs í hlutfalli við landsframleiðslu með því lægsta sem verið hefur undanfarin ár.

„Kemur þar meðal annars til hrun ýmissa skattstofna sem gefið hafa drjúgar tekjur síðustu ár, og má þar nefna tekjuskatta lögaðila og vörugjald af ökutækjum,“ segir í Morgunkorni.

Skatttekjur ríkissjóðs stefna í að nema 24% af vergri landsframleiðslu á næsta ári. Þetta hlutfall náði hins vegar hámarki í 31% árin 2005 og 2006. Greining Íslandsbanka segir að í þessari þróun endurspeglist sú sveiflujöfnun sem innbyggð er í opinber fjármál, þar sem skatttekjur minnka að öðru óbreyttu þegar í harðbakkann slær á meðan útgjöld aukast, til dæmis vegna aukins atvinnuleysis.

„Hins vegar hlýtur að teljast bagalegt að þróun helstu skatthlutfalla hafi verið á þann veg að lækka í góðærinu og hækka svo að nýju í kreppunni. Á þann hátt hafa opinber fjármál heldur magnað hagsveifluna en hitt,“ segir í Morgunkorni.

Sjá nánar í Morgunkorni.