Margrét S. Frímannsdóttir, fv. alþingismaður, hefur verið sett forstöðumaður Fangelsisins Litla-Hrauni tímabundið frá 1. febrúar nk. vegna leyfis Kristjáns Stefánssonar skipaðs forstöðumanns. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Margrét var formaður nefndar sem vann að tillögum um framtíðarrekstur Fangelsisins Litla-Hrauni og lauk nefndin störfum í nóvember síðastliðnum. Hún hefur gegnt ráðgjafarstörfum við fangelsið að undanförnu til að hrinda í framkvæmd niðurstöðum nefndarinnar. Margrét er fyrst kvenna til að gegna starfi forstöðumanns við fangelsi á Íslandi, segir í tilkynningunni.