Margrét Gauja Magnúsdóttir tók í morgun sæti Katrínar Júlíusdóttur og mun sitja á þingi næstu daga. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, greindi frá þessu í morgun. Hann greindi ekki frá ástæðum fjarveru Katrínar, en sagði að hún gæti ekki sinnt þingmennsku næstu daga.