Margrét Pétursdóttir, einn af eigendum EY og sviðsstjóri endurskoðunarsviðs félagsins var þann 2. nóvember sl. kosin í stjórn IFAC, Alþjóðasambands endurskoðenda í Sydney í Ástralíu. IFAC samanstendur af 175 endurskoðunarfélögum í yfir 130 löndum og að baki standa félagsmenn sem telja 3 milljónir endurskoðenda. Margrét verður fulltrúi Íslands og Norræna endurskoðunarsambandsins, NRF, sem stóð að framboði hennar.

Margrét hefur sinnt ýmsum ábyrgðarstörfum, innan EY sem og utan og hefur hún víðtæka reynslu á sviði ytri og innri endurskoðunar. Á síðustu árum hefur Margrét sérhæft sig sífellt meira í endurskoðun fjármálafyrirtækja og hefur Margrét jafnframt undirbúið stjórnarmenn í fjármálafyrirtækjum á Íslandi fyrir hæfismat hjá Fjármálaeftirlitinu.

Margrét hefur verið gæðaeftirlitsmaður hjá EY og á vegum Félags löggiltra endurskoðenda, FLE. Margrét var formaður FLE á árunum 2015-2017 og formaður Norræna endurskoðunarsambandsins á árinu 2017.