Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Samtaka verslunar og þjónustu, SVÞ, sem haldinn var í dag. Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff var kjörin formaður en aðrir í stjórn eru: Ásbjörn Gíslason, Samskip hf., Björn Á. Ágústsson, MEBA Magnús Baldvinsson ehf., Finnur Árnason, Hagar hf., Guðmundur Halldór Jónsson, Norvik hf., Gunnar Karl Guðmundsson, Skeljungur hf., Sigríður Margrét Oddsdóttir, Skjá miðlar.