Breytingar verða á yfirstjórn endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækisins EY. Á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður í september, mun Margrét Pétursdóttir taka við sem forstjóri. Tekur hún við starfinu af Ásbirni Ólafssyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá EY.

„Margrét er einn af eigendum EY og hefur starfað hjá félaginu frá stofnun þess á Íslandi," segir í tilkynningunni. „Margrét hefur verið sviðsstjóri endurskoðunarsviðs undanfarin ár. Í störfum sínum hjá EY hefur Margrét veitt fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum þjónustu, bæði sem ytri og innri endurskoðandi auk annarrar þjónustu. Auk starfa sinna hjá EY hefur Margrét verið formaður Félags löggiltra endurskoðenda, FLE, og situr núna í stjórn Alþjóðasambands endurskoðenda, IFAC."

Fráfarandi forstjóri, Ásbjörn Björnsson, er einn af stofnendum félagsins. Hann mun starfa áfram hjá EY.