Margrét Sverrisdóttir, fyrrverandi varaformaður Íslandshreyfingarinnar og varaborgarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra, er í áttunda sæti framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Fulltrúaráð Samfylkingarinnar í kjördæminu samþykkti framboðslistann í kvöld.
Grétar Þorsteinsson, fyrrverandi forseti ASÍ, er í heiðurssæti listans. Össur Skarphéðinsson skipar efsta sætið. Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, er í 20. sætinu.
Listinn lítur svona út:
1. Össur Skarphéðinsson, ráðherra
2. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur
3. Skúli Helgason, stjórnmálafræðingur
4. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félagsmálaráðherra
5. Anna Pála Sverrisdóttir, laganemi
6. Dofri Hermannsson, leikari og varaborgarfulltrúi
7. Margrét Kristmannsdóttir, form. Samtaka versl. og þjónustu
8. Margrét Sverrisdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands
9. Vilhjálmur Þorsteinsson, frumkvöðull
10. Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar
11. Georg Kári Hilmarsson, tónlistarmaður
12. Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar
13. Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur
14. Garðar Berg Guðjónsson, formaður Smábátafélags Reykjavíkur
15. Svala Norðdahl, verslunarmaður
16. Sema Erla Serdaroglu, stjórnmálafræðinemi
17. Auður Styrkársdóttir, forstöðukona Kvennasögusafns Íslands
18. Guðfinnur Sveinsson, framhaldsskólanemi
19. Anna Kristjánsdóttir, vélstýra
20. Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar
21. Guðrún Ögmundsdóttir, fv. þingmaður
22. Grétar Þorsteinsson, fv. forseti ASÍ