Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu Margt smátt ehf. að það muni þann 1. september nk. taka við sölu- og framleiðslustarfsemi Tanna, en félögin hafa um langt skeið starfað á sama markaði. Margt smátt sérhæfir sig í auglýsinga- og gjafavörum fyrir fyrirtæki og félagasamtök.

Margt smátt mun framvegis selja þær vörur sem Tanni bauð upp á og í þeim tilgangi hefur félagið keypt hluta af framleiðslutækjum Tanna. Auk þess munu þrír starfsmenn Tanna bætast í hóp starfsmanna fyrirtækisins.

Rekstri Tanna í sölu á auglýsingavörum verður hætt í kjölfar þessara breytinga.