Ríkisstjórnin ákvað á fundi í morgun að afla heimilda í fjárlögum næsta árs til að auka stofnfé Íbúðalánasjóðs um allt að 13 milljarða króna til að styrkja eiginfjárhlutfall hans. Þá verða innheimtuferlar endurskoðaðir, áhættustýring styrkt og fullnustueignir sjóðsins færðar í sérstakt félag í eigu ríkisins sem annist umsýslu þeirra.

Í tilkynningu frá ríkisstjórninni segir aflað verði heimildar í fjárlögum 2013 til að auka stofnfé sjóðsins um allt að 13 milljarða þannig að eiginfjárhlutfall verði ekki lægra en 3% í ársbyrjun 2013. „Það er þó engu síður áfram stefna stjórnvalda að eigið fé sjóðsins verði 5% líkt og kveðið er á um í reglugerð um sjóðinn. Nánari ákvörðun um fjárhæð framlagsins verður tekin um leið og uppgjör ársins 2012 liggur fyrir sem og áfangaskýrsla starfshóps velferðarráðherra.“

Fullnustueignir Íbúðalánasjóðs verða færðar í sérstakt félag í eigu ríkisins sem á aðfara með umsýslu eignanna, koma í veg fyrir virðisrýrnun þeirra og koma þeim í verð eftir því sem aðstæður leyfa. Þá verður hluti eignanna fluttur í sérstakt félag sem á að annast rekstur leiguíbúða.

„Áhættustýring Íbúðalánasjóðs verður styrkt og meðal annars settar fram tillögur um hvernig loka megi hluta af þeirri uppgreiðsluáhættu sem sjóðurinn stendur frammi fyrir.

Velferðarráðherra mun skipa sérstakan starfshóp, með aðild forsætisráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs, til þess að fara yfir framtíðarhorfur og framtíðarhlutverk sjóðsins sem leiði til þess að rekstur sjóðsinsstandi undir sér. Starfshópurinn fylgist jafnframt með framgangi framangreindra aðgerða og skili áfangaskýrslu fyrir lok febrúar 2013.

Af hálfu Íbúðalánasjóðs hefur verið til skoðunar að veita óverðtryggð lán sem verði fjármögnuð með útgáfu nýs, óverðtryggðs uppgreiðanlegs skuldabréfaflokks. Ákvarðanir um veitingu óverðtryggðra lána verði teknar þegar staða sjóðsins hefur verið treyst með framangreindum aðgerðum,“ segir í skýrslunni.

Tilkynning ríkisstjórnar .