María Hrund Marinósdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Borgarleikhússins og mun hefja störf þann 1. ágúst næstkomandi . „Ég hef sjaldan verið eins spennt að hefja störf á vinnustað enda hef ég sótt leikhús eins mikið og ég get frá því ég var barn. Það eru forréttindi að markaðssetja upplifun sem maður trúir að skipti verulegu máli fyrir samfélagið okkar og það á sannarlega við um það sem Borgarleikhúsið býður Íslendingum upp á.  Þess utan trúi ég að þetta sé skemmtilegur vinnustaður, stútfullur af fólki sem brennur fyrir það að skapa og það er eftirsóknarverð orka fyrir markaðsmanneskju til að starfa í.“ Segir María í frétttilkynningu frá Borgarleikhúsinu.

María Hrund hefur síðastliðið ár starfað sem markaðsstjóri Strætó þar sem hún innleiddi nýjar áherslur í markaðs- og kynningarmálum í almenningssamgöngum undir yfirskriftinni Besta leiðin. Áður en hún hóf störf hjá Strætó starfaði hún sem markaðsstjóri VÍS frá árinu 2007 – 2016. Árin 2005 til 2007 var hún viðskiptastjóri á Fíton auglýsingastofu en áður ráðgjafi hjá almannatengslafyrirtækinu KOM og markaðsstjóri hjá DV og Frjálsri fjölmiðlum.

María Hrund er stjórnmálafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur víðtæka reynslu á sviði markaðs- og kynningarmála. Þá hefur María Hrund gegnt ýmsum trúnaðarstörfum m.a. sem stjórnarmaður  ÍMARK frá 2013 og sem formaður stjórnar frá árinu 2016.