María Rún Hafliðadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustuvers Icelandair.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en þjónustuverið samanstendur af símaþjónustu félagsins og söluskrifstofunum á aðalskrifstofu Icelandair í Reykjavík og í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli.

María Rún Hafliðadóttir.
María Rún Hafliðadóttir.

María Rún var verkefnisstjóri í þjónustudeild Icelandair 2000 - 2004 og forstöðumaður þjónustudeildar og þjónustueftirlits Icelandair 2004 – 2007. Hún tók við sem þjónustu- og gæðastjóri hjá Kaupþingi 2007 - 2008 og fræðslustjóri Vodafone 2010 - 2011.

María Rún er með viðskiptafræðimenntun frá Háskólanum í Wiesbaden í Þýskalandi.