María Rut Kristinsdóttir lætur af störfum sem sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, en þar hefur hún leitt samráðshóp ráðherra um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins síðastliðin tvö ár til að taka við sem aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns Viðreisnar.

Áður starfaði María Rut sem markaðsstjóri GOMOBILE og formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, en hún lauk B.S. gráðu í sálfræði árið 2013 frá Háskóla Íslands og stundar nú MPA nám við sama skóla. María hefur ætíð verið atorkusöm þegar kemur að félagsmálum segir á facebook síðu Viðreisnar þar sem tilkynnt er um ráðninguna.

Hún var talskona Druslugöngunnar á árunum 2013-2015 þar sem hún lagði ríka áherslu á úrbætur í ofbeldismálum. Hún tók virkan þátt í stúdentapólitík þar sem hún sat m.a. í háskólaráði, jafnréttisnefnd HÍ og sinnti ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir skólann. Var hún tilnefnd af JCI Íslandi sem framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2014 fyrir afrek á sviði menntamála.

María gegndi embætti varaformanns Samtakana '78 árið 2015-2016 og er stofnandi Hinseginleikans, ásamt unnustu sinni. Hinseginleikinn er fræðsluvettvangur fyrir ungt fólk sem hefur það að markmiði að brjóta upp staðalmyndir og fjölga fyrirmyndum hinseginfólks í samfélaginu.

Verkefnið fékk heiðursviðurkenningu KYNÍS fyrir framúrskarandi starf á sviði kynfræðslu 2016. Þá er María einnig í skipulagsteymi rokkhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, sem haldin er á Ísafirði ár hvert.

María Rut er fædd árið 1989 og er trúlofuð Ingileif Friðriksdóttur, laganema og fjölmiðlakonu og eiga þær soninn Þorgeir Atla, 10 ára.