Maríjon Ósk Nóadóttir hefur verið ráðin til almannatengslafyrirtækisins Kvis og kemur til með að sinna fjölmiðla- og lögfræðiráðgjöf hjá fyrirtækinu.

Maríjon sem er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands kemur yfir til Kvis frá Póst- og fjarskiptastofnun. Þar starfaði hún síðastliðin sex ár sem lögfræðingur og sinnti meðal annars úrlausn ágreiningsmála og almennri ráðgjöf á fjarskiptasviði. Þar áður starfaði hún sem fulltrúi hjá Nordik lögfræðiþjónustu.

„Ég er mjög spennt að vera komin aftur yfir í einkageirann og tekst með glöðu geði á við öll þau verkefni sem fjölmiðlaheimurinn hefur upp á að bjóða. Reynsla mín og þekking á fjarskiptaumhverfinu mun einnig koma sér vel þar sem að fjölmiðlar og fjarskipti eru sífellt meira að tvinnast saman. Það eru spennandi tímar framundan,“ er haft eftir Maríjon Ósk í fréttatilkynningu.

Kvis var stofnað árið 2015 og sérhæfir sig í almannatengslum og ráðgjöf á sviði fjölmiðlunar en á meðal viðskiptavina fyrirtækisins eru Malbikstöðin, Netflix og Securitas.

„Það er mikill fengur í Maríjon fyrir núverandi og verðandi viðskiptavini og veit ég það manna best eftir sameiginlega skólagöngu og áralangt samstarf með henni. Hún er ákveðin, skemmtileg og öflug kona og ekki skemmir svo fyrir að við þurfum báðar að lifa með því að eiga engar nöfnur. Við skiljum hvor aðra,“ segir Hödd Vilhjálmsdóttir , framkvæmdastjóri Kvis.