Marinó Björnsson, sem starfaði til 40 ára hjá Heklu, þar af í 28 ár sem sölustjóri Volkswagen, hefur opnað eigin bílasölu, sem ber nafnið MB bílar. Geir Valur Ágústsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Atlanta, á fyrirtækið til helminga á móti Marinó.

Marinó segir að helst skorti nýlegar árgerðir inn á markaðinn, þ.e. frá og með árgerð 2009. Til að tryggja að bílasalan geti boðið slíka bíla sé verið að skoða samstarf við stóra bílaleigu og bílaumboð. Þá sé fyrirtækið í samstarfi við erlendan bílaheildsala og muni getað útvegað nýja bíla í framtíðinni.