Maritech hefur hlotið verðlaunin „Samstarfsaðili ársins 2010“ hjá Microsoft á alþjóðlegri ráðstefnu Microsoft, WPC 2010, Microsoft Worldwide Partner Conference,  sem haldin var í Washington D.C. um miðjan júlí.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Maritech en fyrirtækið var valið úr alþjóðlegum hópi samstarfsaðila Microsoft sem veita viðskiptavinum markaðsmiðaðar lausnir byggðar á tækni frá Microsoft.

Verðlaun voru veitt í ýmsum flokkum og sigurvegarar valdir úr hópi nær 3.000 samstarfsaðila Microsoft um allan heim.

„Það er mikill heiður og viðurkenning á góðum árangri Maritech í sölu og innleiðingum Microsoft Dynamics NAV á Íslandi að vera valin,“ segir Jón Heiðar Pálsson, sviðsstjóri sölusviðs Maritech í tilkynningunni.

„Góðar staðlaðar lausnir fyrir kröfuharða neytendur og reyndustu sérfræðingar landsins á sviði viðskiptahugbúnaðar eru  lykillinn að góðum árangri Maritech.“

Maritech var stofnað árið 1995 og er nú einn stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi. Innan Maritech starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu í Microsoft lausnum og leggur fyrirtækið sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu.