Maritech hlaut í gær verðlaun og viðurkenningu Microsoft á Íslandi fyrir bestan árangur í sölu og dreifingu á Microsoft Dynamics NAV, áður Navision.

Fjárhagsárinu hjá Microsoft lýkur í júní ár hvert og við það tækifæri eru veittar viðurkenningar fyrir bestan árangur hverju sinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Maritech.

„Þetta er mikil viðurkenning fyrir Maritech og sannar hversu mikilvægt það er að hafa skýran fókus, skýr markmið og vel skilgreindar lausnir fyrir okkar markhópa. Maritech leggur höfuðáherslu á þjónustu, viðurkenndar staðlaðar lausnir og að hafa starfsfólk sem hefur sérþekkingu á þeim atvinnugreinum sem við sérhæfum okkur í,“ segir í tilkynningunni.