Helstu hlutabréfavísitölur hafa hækkað um 0,5% til 2% það sem af er morgni í Evrópu. Þýska vísitalan DAX hefur hækkað um 2,25% það sem af er morgni og franska vísitalan CAC hefur hækkað um 1,38%. Sænska vísitalan OMX hefur hækkað um 1,96% það sem af er morgni.

Hlutabréfavísitölur í Asíu lækkuðu lítillega í viðskiptum í gær.