Miklar lækkanir hafa átt sér stað á mörkuðum í Asíu í dag. Nikkei og Topix vísitölurnar í Japan lækkuðu um 2,06% og 2,4% á meðan Hang Seng í Hong Kong lækkaði um 2,4%. Kospi vísitalan í Suður-Kóreu lækkaði um 2,97%.
Lækkanir á mörkuðum í dag eru taldnar að megi rekja til talna frá Bandaríkjunum um fjölgun starfa og atvinnuleysi sem voru undir væntingum, minni vöxt en búist var við í Kína og sífellt umfangsmeiri skuldakreppu víðs vegar um Evrópu. Þetta kemur fram í frétt e24.no um lækkunina í Asíu.