Helstu vísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu mikið við opnun markaða í morgun, en vísitölurnar lækkuðu aftur seinni part dags. Dow Jones vísitalan hækkaði um 0,8% við opnun markaða. S&P 500 vísitalan hækkaði 0,6% og Nasdaq vísitalan um 0,6%.

Eftir það þá hafa helstu vísitölurnar náð sér og lækkað aftur. Nasdasq vísitalan hefur til að mynda lækkað um 1,24% eins og sakir standa.

FTSE 100 vísitalan í Bretlandi lækkaði nokkuð í dag eða um 0,8%. Þýska Dax vísitalan og hin franska Cac hafa hækkað um 0,2% í viðskiptum dagsins.