Framvirk viðskipti með hlutabréf vestanhafs gáfu ekki alveg rétta vísbendingu um þróun dagsins því skömmu eftir opnun markaða hafa allar helstu hlutabréfavísitölurnar á Wall Street lækkað um meira en 1% og nálgast lækkun Dow Jones-vísitölunnar nú 2%. Þessi lækkun hefur haft áhrif á markaði í Evrópu sem enn eru opnir og hafa franska og þýska vísitalan lækkað um rúm 3% en FTSE vísitalan breska um 1,6%.