Verð á fram­virkum samningum á bandarískar hlutabréfavísitölur hefur hækkað eftir að öldunga­deild bandaríkjaþings sam­þykkti frum­varp um hækkun skulda­þaks banda­ríska ríkisins í nótt.

Fulltrúadeildin samþykkti frumvarpið fyrr í vikunni og Joe Biden, for­seti Banda­ríkjanna mun stað­festa frum­varpið von bráðar og koma þannig í veg fyrir greiðslu­fall banda­ríska ríksins.

Sam­kvæmt frétt The Wall Street Journal í morgun hækkaði verð á framvirkum samningum á S&P 500 um 14,25 punkta eða 0,3%

Dow Jones vísi­talan fór upp um 141 punkta eða 0,4%.

Nas­daq 100 fór upp um 32 punkta eða 0.2%

Í gær hækkaði S&P 500 SPX um 41.19 punkta eða 1% sem er mesta hækkun frá því 19. ágúst sl.

Hægist á ráðningum

Von er á nýrri vinnu­markaðs­skýrslu í dag sem mun hafa á­hrif á markaðinn vestan­hafs. Hag­fræðingar spá því að 188 þúsund störfum hafi verið bætt við á markaði í maí sem er mun minna en í apríl þegar 253 þúsund nýjum störfum var bætt við.