Fjöldi umsókna hefur borist ÍMARK til vals á markaðsfyrirtæki ársins 2013, að sögn Klöru Írisar Vigfúsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins.

Verðlaunin verða afhend á Hilton hóteli þann 14. nóvember næstkomandi en dómnefndina skipa fulltrúar úr stjórn ÍMARK, háskólasamfélaginu og atvinnulífinu. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1991. Í fyrra var Marel valið markaðsfyrirtæki ársins og

Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, var valin markaðsmaður ársins 2012. Verðlaunin Markaðsfyrirtæki ársins eru veitt fyrirtækjum sem hafa verið áberandi í markaðsmálum á líðandi ári.