Markaðsvirði Icelandair Group fór í dag í fyrsta skipti yfir 100 milljarða króna. Þetta kemur fram í tölum Kauphallarinnar.

Gengi bréfanna í Icelandair var 20.10 í lok dagsins og nafnvirði bréfa er fimm milljarðar króna. Icelandair Group hagnaðist um 85,8 milljónir dollara, eða 10,4 milljarða króna, á síðasta ársfjórðungi. Heildartekjur félagsins jukust um 13%. Aukin umsvif í millilandaflugi og mikil fjölgun ferðamanna til landsins höfðu jákvæð áhrif á aðra starfsemi Icelandair Group.