Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 4,21% í dag og endaði í 1.764,48 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 6,16% frá áramótum.

Ekki varð nein hækkun á gengi hlutabréfa í dag. Lækkunin stafar líklega af niðurstöðum kosninga um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Útgangan er talin geta haft einhver áhrif á efnahag Íslands.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 6,06% í viðskiptum sem hljóða upp á 684 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 31 króna. Þá lækkaði einnig gengi bréfa Marel um 5,40% í viðskiptum upp á tæpar 800 milljónir króna. Verð á hvern hlut félagsins er 245 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,6 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmega 3,4 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 3,7% í dag í 2,6 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 3,4 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,5% í 0,6 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 2,8 milljarða króna viðskiptum.