Bandaríkjamarkaður tók vel við tíðindum af björgunaraðgerðum fyrir Freddie Mac og Fannie Mae, auk þess sem kaup á stærsta áfengisframleiðanda Bandaríkjanna virðast hafa blásið jákvæðni í markaðinn.

Dow Jones vísitalan hefur það sem af er degi hækkað um 1,2%, Standard & Poor´s hefur hækkað um 1,1% og Nasdaq vísitalan hefur hækkað um 1,2%.

Tíðindin hafa einnig haft jákvæð áhrif á Evrópumarkað. FTSEurofirst 300 vísitalan hefur hækkað um 1,4%, en bankar leiða þá hækkun.