Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum hækkuðu í dag eftir töluverðar sveiflur innan dagsins. Nasdaq hækkaði um rúmt eitt prósent og Dow Jones og S&P 500 hækkuðu um þriðjung úr prósenti. Hlutabréf í Bandaríkjunum lækkuðu mikið á föstudag sem átti sinn þátt í að draga niður aðra markaði í dag.