Markaðsaðilar spá því að vísitala neysluverðs hækki um 0-0,2%, að sögn greiningardeildar Landsbankans, sem spáir 0,2% hækkun. Hagstofan birtist niðurstöður verðmælinga í fyrramálið.

?Gangi spáin eftir nemur tólf mánaða verðbólga 6,8% og lækkar úr 7,0% á milli mánaða,? segir greiningardeildin.

Hún segir erfiðast sé að spá fyrir um breytingu á matvöruverði.

?Óvíst er hversu hratt hækkanir hjá birgjum um áramótin láku út í smásöluverð í janúar og mætti því búast við áframhaldandi hækkun á matvöru í febrúar. Í mars er svo búist við skarpri lækkun vegna skattalækkunar og gæti lækkunin haldið áfram í apríl,? segir greiningardeildin.