Gengi hlutabréfa tæknifyrirtækisins XG Technology hefur tekið snarpa dýfu og bréfin hafa rýrnað í verði um 16,03% það sem af er degi. Klukkan 14:27 var gengið 12,47 Bandaríkjadalir á hlut.

XG Technology er að hluta til í eigu íslenskra fjárfesta og á síðustu dögum hefur gengi bréfa félagsins, sem skráð er á AIM-markaðainn í London,  hækkað hratt. Á þriðjudaginn var markaðsverðmæti félagsins um 1,8 milljarðar dala, en var 544 milljónir við markaðskráningu þess í nóvember. Skráningargengið var rúmir fjórir dalir.

Íslenska félagið Stormur, sem skráð er í Svíþjóð, á um 20% hlut í XG Technology. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins eru íslensku fjárfestarnir sem standa að Stormi, Aðalsteinn Karlsson, Pálmi Sigmarsson, Gunnar Jóhann Birgisson, Þórarinn Kristinsson, Hjörtur Nilsen, Guðmundur Birgisson, Sigurður Hjálmarsson, og Eggert og Gunnar Gíslasynir.