Heildarmat fasteigna á landinu öllu lækkar um 8,6% og verður rúmlega 4.000 milljarðar króna samkvæmt nýju mati Fasteignaskrár Íslands. Mat íbúðarhúsnæðis á landinu öllu lækkar um 10% og verður rúmlega 2.600 milljarðar króna. Fasteignaeigendur um allt land fá í dag og á morgun tilkynningar um niðurstöður fasteignamats fyrir árið 2011.

Fasteignamat á rúmlega 117.000 íbúðum lækkar (94% íbúðarhúsnæðis í landinu), mat á tæplega 7.000 íbúðum hækkar en mat á um 800 íbúðum er óbreytt.

Í lögum, sem tóku gildi í byrjun árs 2009, er kveðið á um að hver einasta fasteign skuli metin árlega í ljósi kaupsamninga um sambærilegar eignir og eigendum tilkynnt niðurstaðan í júnímánuði. Þar segir ennfremur að fasteignamat á hverjum tíma skuli endurspegla markaðsverðmæti (staðgreiðsluverð) fasteignar í febrúar. Fasteignamat íbúðarhúsnæðis fyrir árið 2010 var unnið á síðasta ári í samræmi við nýju lögin. Fasteignamat íbúðarhúsnæðis, sem nú er kynnt vegna ársins 2011, er því gert í annað sinn miðað við breyttar forsendur.

Mat á 1% eigna hækkar

Mat á innan við 1% eigna á höfuðborgarsvæðinu hækkar.  Lækkanir geta verið þar mismiklar, sem skýrist annars vegar af mismunandi verðþróun eftir hverfum og hins vegar af endurbættum matsaðferðum. Áhrif staðsetningar og annarra eiginleika á verðmat eigna voru endurskoðuð eftir því sem ástæða þótti til. Þannig á fasteignamat að endurspegla markaðsverð eins vel og unnt er við hvert endurmat.

Nefna má Kórahverfi í Kópavogi og Úlfarsárdal í Reykjavík sem dæmi þar sem mat á íbúðareignum lækkar umfram meðaltal höfuðborgarsvæðisins en á hinn bóginn hækkar mat á flestum eignum neðst í Fossvogi og á sjávarlóðum á Arnarnesi.

Eignir í Vestmannaeyjum hækka

Vestmannaeyjar skera sig úr á lista yfir heildarmat fasteigna á landinu öllu. Þar hækkar matið um 10,4%. Sömuleiðis hækkar heildarmatið í Skútustaðahreppi um 7,7%, í Grýtubakkahreppi um 6,5%, á Höfn í Hornafirði um 5,5% og í Akrahreppi, Fljótsdalshreppi og Ásahreppi um 3,2-3,6% .

Enn má nefna að mat á fasteignum tengdum virkjunum og stóriðju hækkar um tæplega 3%.