Avion Group mun eingöngu bjóða fagfjárfestum að taka þátt í hlutafjárútboði félagsins sem hefst í næstu viku. Markaðsvirði Avion Group eftir útboðið verður á blinu 58 til 63 milljarðar króna.

Í boði verða nýir hlutir að verðmæti 6 milljarðar króna. Fjárfestum verður boðið að skila inn tilboðum á bilinu 34,3-38,3 krónur á hlut og er lágmarkskaupverð 5 milljónir króna.