Gengi bréfa í KB banka hækkaði um 12,5% í dag og var 395 við lokun markaðar. Hækkun bréfa bankans síðustu 12 mánuði jafngildir 144%. Markaðsvirði bankans er nú 174 milljarðar króna og hefur ekkert íslenskt fyrirtækið verið jafn verðmætt.

Þá má geta þess að bréf KB banka hækkuðu um 9,24% í Stokkhólmi en markaði er lokað þar fyrr en hér á landi.