Gengi bréfa KB banka hefur haldið áfram að hækka í dag í fjörugum viðskiptum og nemur hækkunin það sem af er degi 3,16%. Það kemur til viðbótar 12,5&% hækkun bréfa félagsins í gær. Markaðsvirði bankans nálgast nú 180 milljarða króna og hefur ekkert félag í íslensku Kauphöllinni verið hærra metið.

Það þóttu nokkur tíðindi þegar Pharmaco (nú Actavis) fór yfir eins milljarðs dollara markið á síðasta ári. Nú lætur nærri að markaðsvirði KB banka sé um 2,5 milljarður dollara.