Markaðsvirði Spron er 86 milljarðar króna en þetta er fyrsti dagur félagsins á hlutabréfamarkaði. Gengið er 17 krónur á hlut þegar þetta er skrifað en hefur sveiflast á bilinu 17 til 18,9, samkvæmt upplýsingum frá markaðsvakt Mentis.  Veltan það sem af er degi nemur um 805 milljónum króna. Næst á eftir kemur Kaupþing með 767 milljón króna veltu. Langflest viðskipti á markaði hafa verið með bréf félagsins og nema þau 175 af 410. Næst á eftir kemur Kaupþing með 57 viðskiptum.