Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um rétt rúmlega 1% það sem af er degi og er 5.127 stig.

Mest hækkun í dag er hjá Teymi [ TEYMI ] 0,8%, Marel [ MARL ] 0,7%, Össuri [ OSSR ] 0,2% og hjá Atorku [ ATOR ] 0,1%.

Mest lækkun það sem af er degi er hjá Spron [ SPRON ] 2%, Straumi [ STRB ] 1,7%, Kaupþingi [ KAUP ] 1,6%, Føroya Banka [ FO-BANK ] 1,5% og Exista [ EXISTA ] 1,2%.