Úrvalvísitalan hækkar um 1,42% á fyrsta hálftímanum eftir að markaðurinn opnar og er 6.232,69 stig. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem hann hækkar eftir töluverða dýfu.

Flaga hækkar mest, eða um 4,53%, Kaupþing banki hækkar um 2,22%, FL Group hækkar um 2,02% og Landsbankinn hækkar um 1,85%

Alfesca er eina félagið sem lækkar. Lækkunin nemur 1,02%.