Markaðurinn byrjaði daginn á því að hækka, en ekkert félag hefur lækkað það sem af er degi. Úrvalsvísitalan hefur stigið um 1,25% og er 6.110,37 stig.

Kögun leiðir hækkunina, og félagið hækkar um 4,78%, Landsbankinn hækkar um 2,33%, Össur hefur hækkað um 1,30% og Kaupþing banki hefur hækkað um 0,94%