Ekkert lát er á lækkun úrvalsvísitölunnar þrátt fyrir hækkun í gær. Lækkun hennar um 2,44% í dag hefur tekið til baka hækkunina frá því í gær. Úrvalsvísitalan er 6,675 stig.

Mest hækkun í dag er hjá Alfesca [ A ] 2%, Icelandair [ ICEAIR ] 0,6% og Össuri [ OSSR ] 0,5%.

Mikil lækkun hefur verið hjá FL Group [ FL ] eða 5,5%. Eik banki [ FO-EIK ] hefur lækkað um 4,2%, Exista [ EXISTA ] um 3,8%, Føroya Banki [ FO-BANK ] um 3,4% og Kaupþing [ KAUP ] um 2,7%.