Þrátt fyrir að Úrvalsvísitala [ OMX ISK ] hafi lækkað mikið í upphafi dags var hún örlítið ofan við núllið við lokun Kauphallarinnar. Hækkun Úrvalsvísitölunnar var 0,1% og hún er nú 6,590 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis. Norræna vísitalan OMXN40 lækkaði um 0,1%.

Mest hækkun í dag er hjá Spron [ SPRON ] 2,6%, Eik banka [ FO-EIK ] 1,3%, Bakkavör [ BAKK ]0,55, Landsbankanum [ LAIS ] 0,4% og Atorku [ ATOR ] 0,4%.

Mesta lækkun er hjá Føroya Banka [ FO-BANK ] 1,6%, Atlantic Airways 1,5%, Straumi [ STRB ] 1,3%, Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] 1% og Össur [ OSSR ] 0,5%.