Markþjálfunardagurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica þann 2. febrúar næstkomandi kl. 13.

ICF Iceland stendur fyrir deginum sem ætlaður er til að vekja athygli á þeim árangri sem íslenskt atvinnulíf hefur náð með verkfærum markþjálfunar, að því er kemur fram í tilkynningu. Yfirskrift dagsins er ,,Velsæld og árangur á framsýnum vinnustað,“ en miðasala er á tix.is

Dagurinn leiðir saman alþjóðlegt fagfólk sem deilir reynslu sinni á því hvernig þörf á nýrri nálgun í átt að árangri fyrirtækja byggir á þeirri trú að blómstrandi fólk og teymi séu forsenda þess árangurs. Aðalfyrirlesarar Markþjálfunardagsins eru frumkvöðullinn og manneskja ársins Haraldur Þorleifsson, Tonya Echols margverðlaunaður alþjóðlegur PCC markþjálfi, og Kaveh Mir, stjórnendamarkþjálfi MCC og situr í stjórn ICF International.

Harald þekkir hvert mannsbarn hér á landi fyrir m.a. Römpum upp Ísland verkefnið, auk þess sem hann var kosinn manneskja ársins. Hann hefur náð ótrúlegum árangri í sínum verkefnum hvort sem það eru hans persónulegu verkefni eða fyrirtækið Ueno sem hann byggði upp og seldi til Twitter. Hans erindi nefnist Function + Feelings.

Tonya var valin stjórnendamarkþjálfi ársins af CEO Today Magazine, hún situr í ráðgjafateymi Forbes, hefur skrifað fjölda greina í Forbes og er einn af markþjálfateymi TED Talks.

Kaveh hefur komið að stjórnendaþjálfun, breytingastjórnun, teymis-uppbyggingu, leiðtogaþróun og vinnustaðamenningu hjá fjölda alþjóðlegra fyrirtækjarisa á borð við Warner Bros, Google, Amazon, Lego, Deloitte, HSBC, Mars, Salesforce og CNN og verður gjöfull á reynslu sína í erindi sínu.

Auk þeirra Haraldar, Tonyu og Kaveh munu stíga á stokk þrjú fyrirlesarateymi:

Aldís Arna PCC markþjálfi og Jón Magnús Kristinsson læknir, markþjálfarnir Anna María Þorvaldsdóttir ACC og Inga Þórisdóttir stjórnendaþjálfi og NLP master coach og Kristrún Anna Konráðsdóttir CTPC teymis- og ACC markþjálfi og Davíð Gunnarsson framkvæmdastjóri Dohop.

Þá mun Malcom Fiellies PCC markþjálfi og þjálfunarstjóri hjá ICF Global vera með erindi um stuðning við starfsfólk í gegnum skipulagsbreytingar.