Félag markþjálfa á Íslandi heldur Markþjálfunardaginn í þriðja sinn þann 5. febrúar næstkomandi og verður hann á Hilton Reykjavík Nordica.

„Þinn árangur!“ er yfirskrift dagsins í ár og er ætlunin að segja árangurssögur, hugmyndir og kynna ýmis tæki og tól markþjálfunar til árangurs.

Meðal þeirra sem halda erindi á deginum eru Einar Birkir Einarsson, framkvæmdastjóri Reiknistofu Bankanna, Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, og Viðar Erlingsson.