Olíuverð á heimsmarkaði heldur áfram að lækka í framvirkum samningum.  Á NYMEX í New York var verðið á tunnunni til afgreiðslu í mars skráð fyrir nokkrum mínútum á 40,80 dollara, en hefur lægst farið í dag í 40,01 dollar á tunnuna. Á Brent markaði í London var mars verðið 45 dollarar, en hefur lægst farið í 44,40 dollara það sem af er degi.