Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum er hafin og stendur yfir næstu þrjár vikur. Fjögur skip taka þátt í verkefninu; togararnir Gnúpur GK, Múlaberg SI og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson. Togað verður á tæplega 600 stöðvum á 20-500 metra dýpi umhverfis landið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun.

Verkefnið, sem einnig er nefnt marsrall eða togararall hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1985. Helmingur togstöðva var í upphafi staðsettur af skipstjórum, en öðrum stöðvum var dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti.

Helsta markmið eru að fylgjast með breytingum á stofnstærð, aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið. Einnig verður sýnum safnað vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengunarefnum í sjávarfangi. Erfðasýni verða tekin úr nokkrum fisktegundum, athuganir gerðar á botndýrum og mat lagt á magn ýmiskonar rusls á sjávarbotni.

Í marsralli í fyrra hóf Hafrannsóknastofnun aftur merkingar á þorski eftir nokkurt hlé. Í ár verður þorskur merktur á Vestfjarðamiðum og úti fyrir Norðurlandi.

Fimm til sjö rannsóknamenn eru á hverju skipi auk áhafnar. Í leiðangri Bjarna Sæmundssonar verður rannsóknaliðið alfarið skipað konum í fyrsta skipti í 36 ára sögu verkefnisins.