Marta Guðrún Blöndal
Marta Guðrún Blöndal
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Marta Guðrún Blöndal hefur verið ráðin sem lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Á vef Viðskiptaráðs kemur fram að Marta mun sinna lögfræðilegri ráðgjöf gagnvart framkvæmdastjóra og stjórn, umsagnagerð, skýrsluskrifum og fleiri verkefnum tengdum málefnastarfi ráðsins. Marta hefur þegar hafið störf hjá Viðskiptaráði.

Marta starfaði áður sem fulltrúi á Juris lögmannsstofu og samhliða því sem starfsmaður endurupptökunefndar. Marta hefur að mestu starfað á sviði eignaréttar, samkeppnisréttar og félagaréttar, m.a. við gerð starfsreglna fyrir stjórnir fyrirtækja. Marta er útskrifuð úr Háskóla Íslands með meistarapróf í lögfræði, með þjóðarétt sem áherslusvið.