Marteinn Breki Helgason, forstöðumaður á eignastýringasviði MP Banka, hefur látið af störfum hjá bankanum.

Marteinn Breki hefur starfað við eignastýringu hjá MP banka frá árinu 2007, þar af sem forstöðumaður eignastýringar og síðar innlendrar stýringar frá árinu 2008.

Viðskiptablaðið greindi frá því í morgun að Guðmundur Karl Guðmundsson, sem starfaði sem forstöðumaður einkabankaþjónustu MP Banka, hefði einnig látið af störfum en hann hefur starfað hjá bankanum frá árinu 2004.

Líkt og Guðmundur Karl segir Marteinn Breki að uppsögnin hafi komið til af góðu og hann sé að skoða ýmsa möguleika með framhaldið. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um ástæður starfslokanna.