Norski hjólreiðakappinn Martin Haugo var kokhraustur áður en blásið var til Blue Lagoon Challenge-keppninnar á laugardag. Hann beið hins vegar lægri hlut fyrir Hafsteini Ægi Geirssyni.

VB sjónvarp ræddi við Haugo bæði fyrir og eftir keppnina og um hjólreiðamenningu almennt. Haugo segir Íslendinga á réttri leið með lagningu hjólreiðastíga í Reykjavík.