Matarkistan ehf. sem er meðal annars þekkt fyrir framleiðslu á hafraklöttum og er í eigu Sigurveigar Káradóttur, eiginkonu Egils Helgasonar sjónvarpsmanns, skilaði 2,8 milljóna króna hagnaði á síðasta ári.

Það er nokkru minni hagnaður en árið 2010 þegar félagið var rekið með 4,3 milljóna króna hagnaði eins og fram kemur í ársreikningi. Velta fyrirtækisins jókst þó um tæpar þrjár milljónir á milli ára og veltir nú rúmum 25 milljónum árlega.