Mest hækkaði verð matarkörfunnar um 2,2% í Samkaupum-Strax, í 11-11 nam hækkunin tæplega 1% og í 10-11 hækkaði vörukarfan um 0,8%.

Þetta kemur fram á vef ASÍ.

Í lágvöruverðsverslunum hækkaði verðið á vörukörfu ASÍ um 0,8% í Nettó og 0,7% í Krónunni á milli vikna en var nánast óbreytt í verslunum Bónuss og Kaskó.

Hjá öðrum stórmörkuðum lækkaði verð vörukörfunnar um 1,5% í Samkaupum-Úrval og um 0,6% í Hagkaupum en í Nóatúni hækkaði verð körfunnar um 0,3% á milli vikna.

Lágvöruverðsverslanir hækkað mest

Á vef ASÍ kemur fram að frá því verðlagseftirlit ASÍ hóf átak í eftirliti með verðbreytingum í matvöruverslunum í fyrri hluta aprílmánaðar hefur verð vörukörfunnar hækkað langmest í lágvöruverðsverslunum.

Hækkunin á tímabilinu frá 2. vikunni í apríl til 3. vikunnar í maí er mest í Bónus þar sem verð körfunnar hefur hækkað um 7%.

Í Kaskó nemur hækkunin 5,9% í Krónunni 5,8% og í Nettó hefur vörukarfan hækkað um 4,5% frá því mælingar hófust.

Í öðrum stórmörkuðum hafa breytingar á verði vörukörfu ASÍ verið minni.

Í Nóatúni hefur verð körunnar hækkað um 2,6% frá því í byrjun apríl, í Hagkaupum um 1,1% og í Samkaupum-Úrval um 0,6%.

Í klukkubúðunum hefur verð vörukörfunnar hækkað mest á tímabilinu í 11-11, um 3,6%, í Samkaupum-Strax nemur hækkunin 2,5% og í 10-11 hækkaði vörukarfa ASÍ um 1,3% frá 2. vikunni í apríl til 3. vikunnar í maí. Myndirnar hér að framan sýna verðþróun á vörukörfu ASÍ í einstaka verslunum á öllu tímabilinu.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara.

Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.

Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslanakeðjum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Kaskó og í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og SamkaupumÚrval og Klukkubúðunum 10-11, 11-11 og Samkaupum-Strax.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli vikna. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.