Matei Manolescu hefur hafið störf hjá Landsbréfum hf. Matei starfaði hjá Glitni á árunum 2006 til 2008 þar sem hann stýrði og þjálfaði meðal annars söluteymi bankans í sölu sjóða og annarra þjónustuþátta bankans.

Á árunum 2008 til 2012 starfaði hann hjá Almenna lífeyrissjóðnum. Matei er með MSc-gráðu í fjármálum frá Imperial College í London þar sem hann lagði áherslu á sérhæfðar fjárfestingar og verðlagningu. Þá hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.