Matís og Háskóli Íslands gegna forystuhlutverki í nýju umfangsmiklu fjölþjóðaverkefni sem 7. rannsóknaráætlun Evrópu hefur ákveðið að styrkja til fjögurra ára. Stuttheiti verkefnisins er MareFrame og ber enska titilinn: „Co-creating Ecosystem-based Fisheries Management Solutions“. Styrkurinn hljóðar upp á 6 milljónir evra, en heildarkostnaður við verkefnið er 7.8 milljónir evra. Hlutur Íslands í verkefninu nemur um 275 milljónum íslenskra króna sem skiptast á milli Matís, Háskóla Íslands og Hafrannsóknastofnunar. Í tilkynningu frá Matís segir að styrkurinn sé meðal stærstu verkefnastyrkja sem veittir eru í Evrópu á þessu sviði.

Matís er verkefnastjóri MareFrame, en í því felst að Matís ber m.a. ábyrgð á að stjórna framgangi verkefnisins og samskiptum við fjármögnunaraðila. Allt styrktarféð rennur til Matís sem síðan greiðir innlendum og erlendum samstarfsaðilum sínum. Mikil samkeppni er um rannsóknarstyrki 7. rannsóknaráætlunarinnar. MareFrame hlaut 14 stig af 15 mögulegum í mati fagnefndarinnar, sem er frábær árangur. Með þessu festa íslenskir vísindamenn sig enn frekar í sessi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Í MareFrame verkefninu verður þróað fjölstofna fiskveiðistjórnunarkerfi og fundnar leiðir til að auðvelda innleiðingu þess í Evrópu. Áhersla er lögð á vistvæna, sjálfbæra, félagslega og hagræna stjórnun. Einnig er lögð áhersla á samstarf við sjómenn, útgerðir og vinnslu ásamt öðrum hagsmunaaðilum sem koma að stjórnun fiskveiða.