Prokaria, sem er hluti af Matvælastofnun Íslands (Matís), hefur undafarin tvö ár verið í samstarfi við erlent efnafyrirtæki á sviði líftækni og lífvirkra efna. Nú er svo komið að þetta fyrirtæki keypti af Matís mikilvæg ensím sem það ætlar að nýta í orkurannsóknir sínar. Söluverðmæti þessa samnings er 60.000 evrur eða jafnvirði rúmlega 10 milljóna íslenskra króna.

Starfsemi á sviði líftækni og lífvirkra efna hefur aukist til mikilla muna um allan heim. Vísindamenn hafa í auknu mæli lagt áherslu á rannsóknir á þessu sviði enda er talið að niðurstöður þeirra geti gegnt mikilvægu hlutverki í baráttunni við heilbrigðisvandamál nútíðar og framtíðar. Auk þess telja fræðimenn að leysa megi hluta orkuvanda heimsins með líftækni.

Eitt dæmi um ávinning af líftækninni og lífvirkum efnum eru fiskpeptíð sem geta hugsanlega lækkað blóðþrýst hjá fólki. Lækkun háþrýstings er mikið kappsmál enda kostnaður heilbrigðiskerfisins verulegur vegna hjarta- og æðasjúkdóma en háþrýstingur er einmitt einn áhættuþátta þessara sjúkdóma.

Frá þessu er skýrt á vef Matís.